Sérstakt að verða meistari - aukið viðbragð - ég sé okkur ekki ná í sigur
18.11.2023 | 18:56
Orðlof
Hérlendis og erlendis
Orðið erlendis merkir í útlöndum og hefur þannig gagnstæða merkingu við hérlendis. Lengst af hefur það eingöngu verið haft um dvöl í öðrum löndum, t.d. er hægt að segja
Þau hafa búið erlendis árum saman.
Á síðustu árum hefur borið á því að þetta orð sé notað með hreyfingarsögnum, eins og fara, og þá í merkingunni til útlanda.
Þetta brýtur í bága við hefðbundna merkingu og notkun orðsins og særir málkennd margra.
Þess vegna hefur verið amast við setningum eins og
Ætlarðu að fara erlendis í sumar?
í stað þess að segja til útlanda.
Athugasemdir við málfar í fjölmiðlum
1.
Sérstakt að verða heimsmeistari í nánast tómri höll.
Frétt á Vísi.
Athugasemd: Sérstakur er lýsingarorð og getur merkt svo óskaplega margt í nútímamáli. Hvað átti handboltamaðurinn við? Var þetta áhugavert, ógleymanlegt, sérkennilegt, minnisstætt, stórkostlegt, skemmtilegt og svo framvegi.
Útlendur íþróttamaður sagði um daginn að Grindavík væri sérstakur staður. Hvað átti hann við? Var þetta sagt í neikvæðum eða jákvæðum tón. Hvort var hann hrifinn af bænum eða þótti hann ljótur?
Vinur minn sagði um daginn að kunningi okkar væri vægast sagt frekar sérstakur.
Unglingsstúlkan sagði að bíómyndin hafi verið æðislega sérstök. Hún var greinilega hrifin.
Allir vita að aðstæður í Grindavík eru nú afar sérstakar.
Sérstök lög um vernd mikilvægra innviða á Reykjanesi voru samþykkt 13. nóvember 2023.
Sérstakur er merkilegt orð eins og hér hefur sérstaklega verið rakið. Skyldi merkingin hafa breyst og hana þurfi að ráða í af því samhengi sem hún er í.
Tillaga: Engin tillaga.
2.
Hraun sem kæmi upp milli Sundhnúks og Hagafells gæti sent hraun til vesturs í átt að Svartsengi, til austurs og suðausturs og þar með í átt að Grindavík, og það sama gerðist ef hraun færi til suðurs meðfram Grindavíkurvegi.
Frétt á mbl.is.
Athugasemd: Þetta er illskiljanlegt. Blaðamaðurinn les ekki yfir það sem hann skrifar. Lesandi skilur ekkert.
Í fréttinni segir:
Eins og fjallað hefur verið um á mbl.is hefur athygli jarðvísindamanna að undanförnu beinst í auknum mæli að Sundhnúki og Hagafelli. Kvika er talin streyma upp af miklu dýpi við Sundhnúk og við Hagafell er jafnvel talið líklegast að gjósa muni, komi til þess.
Í sannleika sagt er þetta bölvað hnoð. Eftirfarandi er skárra:
undanförnu beinst sífellt meir að Sundhnúki og Hagafelli. Þar er talið að kvika streymi upp af miklu dýpi og muni hugsanlega enda með gosi.
Aukinn mælir er leiðinlegt orðalag.
Tillaga: Engin tillaga.
3.
Aukið viðbragð í kjölfar grunsamlegra mannaferða.
Frétt á Vísi.
Athugasemd: Viðbragð merkir samkvæmt orðabókinni snöggur kippur eða svörun af einhverju tagi.
Í fréttinni er fjallað um meiri gæslu vegna óæskilegra mannaferða. Lögga sem er viðmælandi blaðamannsins segist hana vera með takmarkað viðbragð. Líklega er átt við að ekki séu nógu margar löggur til að sinna eftirliti og þá á löggan við að gæsla verði efld.
Sé ekki nægur mannskapur til gæslustarfa ætti að orða það þannig. Ekki búa til eitthvað sem kann að vera gáfulegt eða flott. Alþýðlegt mál er alltaf best.
Sá sem rekur olnbogann óvart í eitthvað tekur viðbragð og segist hafa meitt sig í vitlausa beininu. Komi þetta aftur fyrir og maðurinn félli á gólfið er þá hægt að segja að hann taki aukið viðbragð?
Ekki er öll vitleysan eins á degi íslenskrar tungu.
Tillaga: Gæsla efld í kjölfar grunsamlegra mannaferða..
4.
Segir viðbúið að staðan á Reykjanesskaga hafi áhrif á ríkissjóð
Frétt á ruv.is.
Athugasemd: Tillagan er skárri en tilvitnunin.
Tillaga: Býst við að staðan á Reykjanesskaga verði ríkissjóði dýr.
5.
Ég sé okkur ekki ná í sigur.
Frétt á dv.is.
Athugasemd: Líkast til eru allir orðnir skyggnir eða þeir horfi í kristalskúlu eða í kaffibolla eða í spil.
Íþróttablaðamenn segja að lið geti náð í sigur. Þeim er meinilla við að einhver sigri eða tapi.
Tillaga: Ég býst ekki við sigri.
6.
Sá reynslumesti klárar stúdentinn.
Frétt á Vísi.
Athugasemd: Rýr orðaforði skýrir margt.
Tillaga: Sá reyndasti klárar stúdentinn.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 18:59 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)