Málsgrein á aldrei ađ byrja á tölustaf
16.8.2021 | 13:25
Aldrei á ađ byrja málsgrein á tölustöfum. Ástćđan er einföld. Á eftir punkti eđa í upphafi skrifa er ritađur hástafur, upphafsstafur, ekki lítill stafur. Tölustafir eru alltaf eins, enginn hástafur eđa lítill stafur. Tölustafur í upphafi fréttar ruglar.
Í fyrstu grein ritreglna segir:
Stór stafur er alltaf ritađur í upphafi máls og í nýrri málsgrein á eftir punkti.
Af ţessu leiđir ađ annađ hvort á ađ skrifa töluna međ bókstöfum eđa umorđa setninguna svo tölustafurinn verđi ekki fremstur. Ţannig er ţetta út um allan heim. Hér á landi virđast margir blađamenn ekkert vita um ţetta.
Á vefnum Grammar Monster segir:
It is considered untidy to start sentences with figures. You should either reword your sentence or write the number in full.
Blađamenn á öllum fjölmiđum eiga ţađ til ađ byrja málsgreinar á tölustöfum. Ef ekki allir ţá eru allir undir ţá sök seldir ađ leiđbeina ekki ţeim sem gera ţetta. Fyrst og síđast hvílir ábyrgđin á stjórnendum fjölmiđlanna, ritstjórum, ritstjórnarfulltrúum og öđrum sem teljast til umsjónarmanna. Ţeir standa sig illa ađ ţessu leyti.
Í tćpa tvo mánuđi hef ég hagađ mér svo heimskulega ađ ég hef skrifađ niđur ţau skipti sem ég rekst á tölustafi í upphafi málsgreinar. Mér hefur lengi virst ţetta svo algengt ađ ég vildi athuga hvort rétt vćri. Og svo er.
Verst er ţegar fjölmiđlar segja frá kórónufaraldrinum. Blađamenn sjá á vef á vefnum covid.is, tölfrćđi dagsins. Ţeir virđast skrifa allt í belg og biđu sem ţar stendur og byrja á tölustöfunum: 1.988 eru í sóttkví í dag og svo framvegis í stađ ţess ađ skrifa Í sóttkví eru nú 1.988 manns.
Já, en ţetta er nú bara tölur um faraldurinn, kann einhver ađ segja. Nei, ţetta eru fréttir og ţćr ţarf ađ reiđa fram eins og rétt er. Eđa er stundum réttlćtanlegt ađ skrifa vitleysu?
Ekki hef ég rýnt svo vel í fréttir ađ ég hafi fundiđ allt. Ţar ađ auki les ég ekki alla fjölmiđla á sama hátt. Ţeir eru ólíkir sem og blađamennskan sem stunduđ er.
Hér er listinn minn og í honum er greint frá upphafi fréttar og linkur á hana fylgir.
Mogginn
- 120 tilkynningar mbl.is.
- 159 er enn. mbl.is.
- 90 prósent Morgunblađiđ 29.6.20, blađsíđa 14
- 32 stúlkur mbl.is.
- 119 einstaklingar Morgunblađiđ 15.7.21, blađsíđu 32.
- 827 einstaklingar Morgunblađiđ 20.7.21, forsíđa.
- 955 hegningarlagabrot Morgunblađiđ 23.7.21, blađsíđa 10.
- 71 kórónuveirusmit mbl.is.
- 122 greindust Blađsíđa 6 í Morgunblađinu 29.7.21.
- 1. nóvember 1913 Blađsíđa 21 í Morgunblađinu 31.7.21.
- 67 kórónuveirusmit mbl.is.
- 4152 sýni mbl.is.
- 24 hafa Blađsíđa 4 í Morgunblađinu 4.8.21.
- 42 ára mbl.is.
- 151 kórónuveirusmit mbl.is.
- 94 eru mbl.is
- 119 kórónuveirusmit mbl.is.
- 800 heimili mbl.is.
- 57 kórónuveirusmit mbl.is.
- 106 kórónuveirusmit mbl.is.
- 14 daga mbl.is.
- 91 var mbl.is.
- 14 daga mbl.is.
- 1.842 eru mbl.is.
- 14 daga mbl.is.
- 1.988 eru mbl.is.
Vísir
- 28 ára karlmađur visir.is.
- 37,4% eru visir.is.
- 50 ţeirra visir.is.
- 45 ţeirra visir.is.
- 14 daga visir.is.
- 151 greindist visir.is.
- 94 greindu visir.is.
- 1.388 eru visir.is.
- 1.136 eru visir.is.
- 2.333 eru visir.is
- 49 greindust visir.is.
- 23 hinna visir.is.
- 1.380 eru visir.is.
- 1.842 eru visir.is.
- 111 greindust visir.is.
- 2.385 innanlandssýni vísir.is.
Ríkisútvarpiđ
- 67 greindust ruv.is.
- 108 greindust ruv.is.
- 116 smit ruv.is.
- 55 ţeirra sem ruv.is.
- 94 voru. ruv.is.
- 119 greindust ruv.is.
- 3,84 prósent ruv.is.
- 57 greindust ruv.is.
- 1.380 eru ruv.is.
- 18 eru ruv.is.
- 106 manns ruv.is.
- 130 greindust ruv.is.
- 55 greindust ruv.is.
- 30 voru ruv.is.
- 1.988 eru ruv.is.
- 14 daga ruv.is.
DV
Fréttablađiđ
- 21 er frettabladid.is.
- 21 manns áhöfninni frettabladid.is.
- 321 barn og frettabladid.is.
Bćta viđ athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hćgt ađ skrifa athugasemdir viđ fćrsluna, ţar sem tímamörk á athugasemdir eru liđin.